Fotbolti.net
02.07.21 - 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Billy Gilmour til Norwich (Staðfest)

Billy Gilmour til Norwich (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Norwich er búið að krækja í Billy Gilmour frá Chelsea og verður hann á láni hjá Norwich út komandi tímabil.

Gilmour átti frábæran leik þegar Skotland og England gerðu jafntefli í riðlakeppni EM. Það var hans eini leikur í mótinu, hann lék ekki með gegn Tékklandi í fyrstu umferð og eftir leikinn gegn Englandi greindist hann með Covid og gat ekki spilað gegn Króötum.
Gilmour er tvítugur miðjumaður sem uppalinn er hjá Rangers og Chelsea.

Norwich vann Championship deildina síðasta vetur og spilar í úrvalsdeildinni á komandi tímabili.

Gilmour lék alls ellefu leiki með Chelsea á liðnu tímabili.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.