Fotbolti.net
02.07.21 - 12:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Cyera Hintzen í Val (Staðfest)

Cyera með boltann í háskólaboltanum.

Cyera með boltann í háskólaboltanum.

Canon

Mynd: TCU

Kvennaboltinn
Valur er búið að kynna þá tvo leikmenn sem félagið ætlaði að fá sér í glugganum. Félagið ætlaði að fá inn einn íslenskan og einn erlendan leikmann.

Fyrr í dag fékk Lára Kristín Pedersen leikheimild með liðinu og félagið greindi svo frá því á samfélagsmiðlum fyrir skemmstu hver erlendi leikmaðurinn er.
Sú heitir Cyera Hintzen og er framherji sem kemur til félagsins úr bandaríska háskólaboltanum þar sem hún lék með University of Texas. Hún verður 24 ára í október.

Valur er í toppsæti Pepsi Max-deildar kvenna eftir átta umferðir. Liðið mætir Breiðabliki í undanúrslitum Mjólkurbikarsins eftir tvær vikur og mætir Hoffenheim í Meistaradeildinni eftir einn og hálfan mánuð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.