02.07.21 - 19:16
Victor Pálsson
Gunni Einars hættur með Víking Ó. (Staðfest)

Gunni í lok síðasta árs.

Mynd: Víkingur Ó.

Gunni í lok síðasta árs.

Mynd: Víkingur Ó.
Gunnar Einarsson hefur látið af störfum sem þjálfari Víkings Ó. í Lengjudeild karla en þetta var staðfest í kvöld.
Víkingar gáfu frá sér tilkynningu í kvöld þar sem greint er frá því að Gunnar hafi óskað þess að láta af störfum eftir slæmt gengi í sumar.
“Ég er þakklátur fyrir tækifærið sem ég fékk hjá Ólsurum og ég hef óbilandi trú á því að leikmenn og aðrir sem að liðinu koma muni snúa gengi liðsins við," er haft eftir Gunnari.
Gengi Víkinga hefur verið hörmulegt í sumar og er liðið á botni Lengjudeildarinnar með aðeins eitt stig.
Liðið tapaði síðasta leik sínum 7-0 gegn Þrótti Reykjavík og fyrir það var tapað 5-3 gegn Selfossi.
Eina stig liðsins kom þann 5. júní er liðið náði í gott 2-2 jafntefli við Þór við erfiðar aðstæður.