Fotbolti.net
02.07.21 - 23:20
Victor Pálsson

Hjalti keyptur til Leiknis frá KR (Staðfest)

Hjalti keyptur til Leiknis frá KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hjalti Sigurðsson er mættur aftur til Leiknis Reykjavík og mun leika með liðinu í efstu deild karla í sumar.
Leiknismenn tilkynntu kaup á Hjalta í kvöld og er hann kominn með leikheimild fyrir leik gegn Blikum á morgun.

Hjalti hóf ferilinn með KR og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2018 og voru þeir þrír fyrir félagið það árið.

Hjalti spilaði svo með Leikni frá 2019 til 2020 áður en hann samdi aftur við KR þar sem tækifærin hafa verið fá.

Leiknismenn hafa nú nýtt sér það og fengu Hjalta aftur í sínar raðir.

Hjalti er fæddur árið 2000 og hefur samtals leikið 37 leiki í meistaraflokki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.