02.07.21 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ingibergur Kort lánaður í Vatnaliljur (Staðfest)

Í leik með Fjölni í fyrra

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í leik með Fjölni í fyrra

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingibergur Kort Sigurðsson er genginn í raðir Vatnaliljur frá Víkingi Ólafsvík.
Ingibergur gekk í raðir Víkings frá Fjölni fyrir tímabilið og spilaði fimm leiki með Víkingi í Lengjudeildinni.

Hann hefur ekki spilað með Víkingi síðan 5. júní þegar Víkingur gerði jafntefli gegn Þór.
Ingibergur er 23 ára, hann er uppalinn hjá Hvöt og hefur einnig leikið með Njarðvík og Fjölni.
Víkingur Ólafsvík er í botnsæti Lengjudeildarinnar. Vatnaliljur eru með fjögur stig eftir sjö leiki í D-riðli 4. deildar.