Fotbolti.net
02.07.21 - 22:00
Victor Pálsson

Jack Harrison keyptur til Leeds (Staðfest)

Jack Harrison keyptur til Leeds (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Stuðningsmenn Leeds fengu gleðifréttir í kvöld en félagið er búið að festa kaup á Jack Harrison.
Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur spilað með Leeds síðustu þrjú tímabil í láni frá Manchester City.

Leeds hefur nú fest endanleg kaup á leikmanninum en kaupverðið er ekki gefið upp að svo stöddu.

Harrison skrifaði undir þriggja ára samning við Leeds stuttu eftir að Stuart Dallas gerði slíkt hið sama.

Harrison hóf ferilinn með New York City í MLS-deildinni en fór til Man City árið 2018 og svo til Middlesbrough og síðar Leeds.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.