Fotbolti.net
02.07.21 - 17:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

John Obi Mikel rifti við Stoke og fer til Kúveit (Staðfest)

John Obi Mikel.

John Obi Mikel.

Canon

Mynd: Getty Images

John Obi Mikel hefur yfirgefið herbúðir Stoke City á Englandi og er kominn með nýtt félag á Kúveit.
Samningur Obi Mikel hjá Stoke var framlengdur fyrir stuttu síðan en svo komust félagið og hann að samkomulagi um að rifta samningnum.

Hann er búinn að skrifa undir samning við Al Kuwait SC, sem hafnaði í þriðja sæti í deildinni í Kúveit á síðustu leiktíð.

Obi Mikel er 34 ára gamall miðjumaður frá Nígeríu sem spilaði með Chelsea í rúm tíu ár. Hann yfirgaf Lundúnaliðið 2017 eftir að hafa unnið Meistaradeildina með félaginu.

Síðan hann yfirgaf Chelsea hefur hann komið víða við; hann hefur spilað í Kína, í Tyrklandi á Englandi með Middlesbrough og Stoke.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.