02.07.21 - 10:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Juan Mata áfram hjá Man Utd (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Juan Mata hefur framlengt samning sinn við Manchester United og verður hjá félaginu út komandi tímabil.
Mata gekk í raðir Manchester United árið 2014 og hefur leikið 189 deildarleiki síðan og skorað í þeim 34 mörk.
Mata er 33 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður sem uppalinn er hjá Real Oviedo og Real Madrid. Hann hefur einnig leikið með Valencia og Chelsea á sínum ferli.

Gamli samningur Mata rann út í gær en hann ákvað að skrifa undir nýjan eins árs samning.
Á síðustu leiktíð kom hann við sögu í alls átján leikjum með United.

2️⃣0️⃣2️⃣2️⃣ 🔏
— Manchester United (@ManUtd) July 2, 2021
🪄 @JuanMata8 has extended his stay at United! 🔴#MUFC