02.07.21 - 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lára Kristín í Val (Staðfest)

Lára Kristín í leik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lára Kristín í leik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lára Kristín Pedersen er gengin í raðir Vals og kemur til félagsins eftir veru hjá ítalska félaginu Napoli. Lára á tvo A-landsleiki að baki auk þess sem hún hefur spilað 32 leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Lára er miðjumaður sem er fædd árið 1994 og hefur spilað með Aftureldingu, Stjörnunni, Þór/KA sem og í bandaríska háskólaboltanum.
Lára er miðjumaður sem er fædd árið 1994 og hefur spilað með Aftureldingu, Stjörnunni, Þór/KA sem og í bandaríska háskólaboltanum.
Valur ætlar að fá sér tvo leikmenn í glugganum og er Lára önnur þeirra. Hinn leikmaðurinn er erlendur sóknarmaður.
Lára er komin með leikheimild og getur spilað með Val gegn Selfossi í næstu umferð.
Valur er í toppsæti Pepsi Max-deildarinnar og er á leið í Meistaradeildina seinna í sumar. Dregið verður í Meistaradeildina seinna í dag.