Fotbolti.net
02.07.21 - 16:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Parris til Arsenal (Staðfest) - Fer Miedema hina leiðina?

Parris fagnar marki með enska landsliðinu.

Parris fagnar marki með enska landsliðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
Arsenal er búið að klófesta ensku landsliðskonuna Nikita Parris og kemur hún frá franska stórliðinu Lyon.

Hjá Lyon var Parris liðsfélagi íslenska landsliðsfyrirliðans, Söru Bjarkar Gunnarsdóttur.
Parris var í tvö tímabil hjá Lyon þar sem hún varð meðal annars Evrópumeistari ásamt Söru Björk. Hún er 27 ára gömul og spilaði áður með Everton og Manchester City á Englandi.

Parris, sem á 50 A-landsleiki að baki fyrir England, mun eflaust hjálpa Arsenal mikið á næstu leiktíð í toppbaráttunni á Englandi.

Þessi félagskipti gætu haft það með sér í för hollenska markamaskínan Vivianne Miedema fari frá Arsenal yfir til Lyon. Það hefur verið í umræðunni síðustu vikur en það myndi styrkja Lyon gríðarlega mikið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.