02.07.21 - 18:04
Victor Pálsson
Soumare keyptur til Leicester (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Leicester City hefur staðfest komu miðjumannsins Boubakary Soumare frá meisturum Lille í Frakklandi.
Þessi félagaskipti Soumare hafa legið í loftinu í dágóðan tíma en enska félagið tilkynnti þau nú í kvöld.
Soumare skrifar undir fimm ára samning við Leicester en kaupverðið er talið vera í kringum 17 milljónir punda.
Um er að ræða 22 ára gamlan leikmann sem spilaði 84 leiki fyrir Lille í frönsku deildinni frá 2017 til 2021.
Hann er uppalinn hjá Paris Saint-Germain en náði aldrei að leika aðalliðsleik þar á bæ.