Fotbolti.net
02.07.21 - 09:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Theódór Elmar heim í KR (Staðfest)

Elmar í leik með KR á undirbúningstímabilinu 2018.

Elmar í leik með KR á undirbúningstímabilinu 2018.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Theódór Elmar Bjarnason er genginn í raðir KR og getur spilað með liðinu á mánudag gegn KA.

Elmar er uppalinn hjá KR og lék síðast með félaginu árið 2004. Þá hélt hann til Celtic í Skotlandi og hefur verið í atvinnumennsku síðan.
Fyrir áramót lék hann með Akhisarspor í Tyrklandi og eftir áramót lék hann með Lamia í Grikklandi.

Elmar á að baki 41 landsleiki og kom sá síðasti árið 2018. Hann er 34 ára gamall miðjumaður.

KR mætir KA á Dalvíkurvelli á mánudagskvöld.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.