Fotbolti.net
02.07.21 - 11:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tom Heaton til Manchester United (Staðfest)

Tom Heaton til Manchester United (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tom Heaton er genginn í raðir Manchester United og skrifar undir tveggja ára samning við félagið.

Heaton er 35 ára gamll og var á mála hjá United þegar hann var yngri. Hann var í þrettán ár hjá félaginu en hann hefur síðan leikið með Cardiff, Bristol City, Burnley og Aston Villa.
Samningur Heaton við Aston Villa var runninn út og kemur hann á frjálsri sölu til United.

Heaton á að baki þrjá A-landsleiki fyrir England. Hann var aðalmakrvörður Aston Villa tímabilið 2019-20 en meiddist á þeirri leiktíð. Aston Villa náði svo í Emi Martinez frá Arsenal síðasta sumar og var Heaton varamarkvörður fyrir hann á liðinni leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.