Fotbolti.net
02.07.26 - 11:28
Kári Snorrason

Bestur í Mjólkurbikarnum - „Liðið skrifar söguna á hverju ári“

Fullhlaðinn Birkir.

Fullhlaðinn Birkir.

Canon

Mynd: Kári Snorrason

Mjólkurbikarinn
Birkir Már Sævarsson fór á kostum í sigri Aftureldingar á Stjörnunni í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Eftir að hafa lent undir jafnaði Birkir metin um miðbik síðari hálfleiks. Bart Kooistra bætti um betur tveimur mínútum síðar og kom Aftureldingu yfir.

Birkir skoraði síðar þriðja mark Aftureldingar og þar með tryggði Mosfellingum í undanúrslit Mjólkurbikarsins í fyrsta sinn.
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
TENGT EFNI

Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan

„Þetta lið er að skrifa söguna eiginlega á hverju ári. Ég er þakklátur með að fá að taka þátt í þessu verkefni með Aftureldingu,“ sagði Birkir eftir leik en liðið lék í fyrsta sinn í efstu deild í fyrra.

Birkir gerði sér leið á skrifstofu Fótbolta.net í gær þar sem hann var verðlaunaður með kassa af Hleðslu frá Mjólkursamsölunni fyrir frammistöðu sína í Mjólkurbikarnum.

Þá var hann jafnframt gestur í HM hringborðinu ásamt bróður sínum Aroni Elí Sævarssyni þar sem hann fór yfir leiki í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins ásamt því að rifja upp HM 2018 og EM 2016 með Íslandi.

Fagnar seinna marki sínu gegn Stjörnunni.

Fagnar seinna marki sínu gegn Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

HM hringborðið: Sævarssynir fara yfir 32-liða úrslitin

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.