Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. ágúst 2021 19:07
Victor Pálsson
Meiðsli Partey líta ekki vel út
Mynd: Getty Images
Thomas Partey, leikmaður Arsenal, gæti verið alvarlega meiddur en hann meiddist í leik gegn Chelsea í gær.

Arsenal tapaði leiknum með tveimur mörkum gegn einu en Partey fór af velli eftir 40 mínútur í fyrri hálfleik.

Miðað við orð Arteta þá gæti Partey verið illa meiddur sem væru skelfilegar fréttir fyrir liðið.

„Ég var að ræða við lækninn og hann mun fara í nánari skoðun í framhaldinu," sagði Arteta.

„Eins og staðan er þá lítur þetta ekki vel út því hann fan verulega til og gat ekki haldið áfram. Með Thomas þá er það mjög óvenjulegt."

Fréttirnar eru sérstaklega slæmar í ljósi þess að enska deildin byrjar eftir tæplega tvær vikur.
Athugasemdir
banner
banner