Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. ágúst 2021 18:18
Victor Pálsson
Yngsti markaskorari Tottenham gerir fyrsta samninginn
Mynd: Getty Images
Alfie Devine, yngsti leikmaður til að spila fyrir Tottenham frá upphafi, hefur skrifað undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við félagið.

Þetta kom fram í tilkynningu Tottenham í gær en Devine fagnaði 17 ára afmæli sínu á sunnudaginn.

Devine varð yngsti leikmaðurinn til að spila fyrir Tottenham í janúar er liðið mætti Marine í enska bikarnum.

Ekki nóg með það heldur varð Devine um leið yngsti markaskorari Tottenham frá upphafi en hann skoraði í þessum 5-0 sigri.

Samningur leikmannsins gildir til ársins 2024 og er hann því samningsbundinn næstu þrjú árin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner