02.09.26 - 15:06
Elvar Geir Magnússon
Gummi Hreiðars áfram við hlið Heimis á Írlandi

Heimir Hallgrímsson og Guðmundur Hreiðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

John O'Shea og Heimir.

Mynd: EPA

Heimir Hallgrímsson og Guðmundur Hreiðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Írska fótboltasambandið hefur tilkynnt að búið sé að framlengja samninga allra í starfsliði landsliðs Írlands. Þar á meðal er markvarðaþjálfarinn Guðmundur Hreiðarsson.
Í mars skrifaði Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, undir framlengingu fram að EM 2028, sem m.a. verður haldið á Írlandi.
Í mars skrifaði Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, undir framlengingu fram að EM 2028, sem m.a. verður haldið á Írlandi.

TENGT EFNI
Heimir framlengir á Írlandi (Staðfest)
„Gummi er einstakur á allan hátt. Hann er góður vinur og skilur mig vel. Það er ofboðslega mikilvægt þegar þú ert í svona umhverfi að hafa einhvern sem þú getur talað við og einhvern sem getur létt á þér," sagði Heimir um Guðmund í útvarpsviðtali við Fótbolta.net á sínum tíma en þeir hafa unnið saman hjá landsliðum Íslands, Jamaíku og núna Írlands.
„Svo sem fagmaður er hann alveg magnaður. Hann kann allt verksviðið. Margir þjálfarar eru bara góðir á einum stað en hans verksvið er svo vítt. Hann er svo góður fagmaður og öllum markvörðum þykir svo vænt um hann. Hann tengist leikmönnum sínum svo vel."
John O'Shea hefur þá skrifað undir nýjan samning sem aðstoðarþjálfari Heimis með írska landsliðið. Framundan hjá írska landsliðinu er Þjóðadeildin þar sem liðið er í B-deild og í riðli með Kósovó, Ísrael og Austurríki.

The FAI has confirmed that the Ireland Men’s National Team coaching staff have extended their contracts until the conclusion of UEFA EURO 2028.
— Ireland Football ?????????? (@IrelandFootball) September 2, 2026
Following Head Coach Heimir Hallgrímsson’s contract extension earlier this year, Assistant Head Coach John O’Shea, Assistant Coach… pic.twitter.com/iXRYgn9tdt

John O'Shea og Heimir.

Mynd: EPA