Svona er byrjunarlið FH - Frítt á völlinn

Ásdís Karen yfirgaf FH í vikunni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hafrún Birna Helgadóttir kemur inn í liðið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH liðið getur skrifað söguna í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásdís Karen yfirgaf FH í vikunni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH tekur á móti Apollon Ladies frá Kýpur í seinni leik liðanna í 1. umferð Evrópubikarsins. Frítt er á völlinn í boði Auðar. Byrjunarliði hafa verið opinberuð og þau má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu nýja Evróputreyju FH - Fyrsti heimaleikur
FH neyðist til að gera eina breytingu frá fyrri leiknum gegn Apollon en Ásdís Karen Haraldsdóttir sem yfirgaf FH í vikunni og hélt til AIK kemur út úr liðinu og inn fyrir hana kemur Hafrún Birna Helgadóttir.
Um sögulegt einvígi er að ræða en þetta eru fyrstu leikir kvennaliðs FH í Evrópu. Þær eru í góðri stöðu eftir fyrri leikinn sem þær unnu 0–2 og gætu skrifað söguna í dag með því að vinna sitt fyrsta Evrópueinvígi. Spilað er í sérstökum Evróputreyjum í tilefni þess sem opinberaðar voru í gær.
Byrjunarlið FH
- 1. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
- 2. Birna Kristín Björnsdóttir
- 5. Mackenzie Elyze Smith
- 8. Helena Maree Errington
- 13. Deja Jaylyn Sandoval
- 15. Hrönn Haraldsdóttir
- 19. Hildur Katrín Snorradóttir
- 29. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (f)
- 37. Jónína Linnet
- 41. Ingibjörg Magnúsdóttir
- 42. Hafrún Birna Helgadóttir
Byrjunarlið Apollon Ladies
- 31. Isabella Hara (m)
- 2. Mallory Mooney
- 3. Mackenzie Jordan Geigle
- 6. Steffi Hardy
- 8. Filippa Savva
- 11. Natasha Hudson
- 15. Olivia Pearse
- 21. Krystyna Freda
- 30. Korina Adamou
- 33. Maria Ficzay
- 77. Jelena Prvulovic

Hafrún Birna Helgadóttir kemur inn í liðið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH liðið getur skrifað söguna í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
