02.09.26 - 09:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ungir Þórsarar gætu mætt Chelsea
Ljóst hvaða liði Þór mætir í 1. umferð Evrópukeppninnar


Mynd: Ármann Hinrik - Akureyri.net


Mynd: Ármann Hinrik - Akureyri.net
Í gær var dregið í Evrópukeppni unglingaliða og var Þór, sem varð Íslandsmeistari í 2. flokki, í pottinum.
Liðið dróst gegn Litháenska liðinu Zalgiris í 1. umferð og ef það einvígi vinnst þá mætir Þór St. Patrick's Athletic frá Írlandi.
Liðið dróst gegn Litháenska liðinu Zalgiris í 1. umferð og ef það einvígi vinnst þá mætir Þór St. Patrick's Athletic frá Írlandi.

TENGT EFNI
Þórsarar Íslandsmeistarar í 2. flokki
Eftir dráttinn í gær er ljóst að ef Þór vinnur þau einvígi þá getur liðið mætt Chelsea í 3. umferð. Til þess að það yrði þyrfti Þór að komast þangað og Chelsea að slá út annað hvort Flora Tallinn frá Eistlandi eða Havnar Boltfélag frá Færeyjum sem mætast fyrst innbyrðis.
Fyrri leikur Þórs og Zalgiris fer fram á Akureyri 16. september en seinni leikurinn verður spilaður ytra 14. október.
Fyrri leikur Þórs og Zalgiris fer fram á Akureyri 16. september en seinni leikurinn verður spilaður ytra 14. október.
