Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 02. október 2018 14:21
Elvar Geir Magnússon
Ekki orðið uppselt á Old Trafford í kvöld
Enn hægt að fá miða á Man Utd - Valencia!
Enn hægt að fá miða á Man Utd - Valencia!
Mynd: Getty Images
Hægt er að kaupa miða á leik Manchester United og Valencia í miðasölunni á Old Trafford. Ekki er uppselt á leikinn.

Illa hefur gengið hjá United en liðið vann síðast leik þegar það lagði Young Boys í fyrstu umferð riðlakeppninnar í síðasta mánuði.

Venjulega er uppselt á Evrópuleiki á Old Trafford og mjög sjaldgæft er að fótboltaaðdáendur geti keypt miða nokkrum tímum fyrir leik.

Á fréttamannafundi í gær sagðist Jose Mourinho ekki hafa áhyggjur af sinni stöðu ef slæmt gengi liðsins heldur áfram.

„Ég geri það sem ég get gert til að bæta hlutina, ég bæti þá hluti sem snúa að mér og mínu starfi," sagði Mourinho en tapið gegn West Ham um helgina gerði það að verkum að þetta er versta byrjun United síðan 1989-90.


Athugasemdir
banner
banner
banner