Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   sun 02. október 2022 13:47
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Haaland og Foden að ganga frá United
Erling Braut Haaland er kominn með 13 deildarmörk
Erling Braut Haaland er kominn með 13 deildarmörk
Mynd: EPA
Norski framherjinn Erling Braut Haaland heldur áfram að gera allt vitlaust í ensku úrvalsdeildinni en hann er búinn að skora tvö mörk gegn Manchester United á Etihad-leikvanginum.

Phil Foden kom Man City yfir á 8. mínútu eftir gott samspil heimamanna en svo var það Haaland sem tók við sýningunni.

Haaland bætti við öðru marki með skalla eftir hornspyrnu á 34. mínútu og fjórum mínútu síðar átti Kevin de Bruyne glæsilega sendingu á fjærstöng þar sem Haaland mætti á sprettinum og tæklaði boltann í netið.

Nokkrum mínútum síðar lagði svo Haaland upp fjórða mark Man City fyrir Foden. Þeir félagarnir því báðir með tvö mörk og United í þvílíku basli.

Sjáðu fyrra mark Haalnd
Sjáðu seinna mark Haaland
Markið hjá Foden
Athugasemdir
banner
banner
banner