02.10.26 - 17:28
Elvar Geir Magnússon
Óttast um öryggi sitt vegna Man City málsins

Uppljóstrarinn Rui Pinto.

Mynd: Spiegel

Lögregluþjónn í Portúgal.

Mynd: EPA

Uppljóstrarinn Rui Pinto.

Mynd: Spiegel
Portúgalinn Rui Pinto, uppljóstrarinn á bak við Football Leaks, segist óttast um öryggi sitt en hann mun ekki lengur hljóta vernd frá portúgölskum yfirvöldum.
Pinto segir að staða sín sé grafalvarleg en hann hrundi af stað lekanum sem varð til þess að Manchester City var rannsakað vegna fjárhagsbrota. Hann hefur í kjölfarið fengið fjölmargar alvarlegar hótanir.

TENGT EFNI
Maðurinn sem kom Man City í klandur
Pinto, 37 ára, stofnaði Football Leaks árið 2015 og birti þar fjölda trúnaðargagna úr fótboltaheiminum. Meðal gagnanna voru tölvupóstar og skjöl frá Manchester City um styrktarsamninga og greiðslur.
„Hótanirnar gegn honum eru ekki einungis í orði því ráðist var á hann í Lissabon í apríl síðastliðnum," segir í yfirlýsingu frá lögfræðingum hans.
Í yfirlýsingunni segir að hann muni eftir örfáa daga missa verndað húsnæði sem honum var úthlutað og ekki sé víst að hann fái áframhaldandi lögregluvernd. Það setji hann í hættu.