Fotbolti.net
02.10.26 - 07:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tzolis meiddur og farinn til Lundúna

Tzolis meiddur og farinn til Lundúna
Canon

Mynd: EPA

Grikkinn Christos Tzolis er farinn aftur til Lundúna og mun fara í frekari skoðun hjá félagsliði sínu Arsenal eftir að hafa meiðst í leik Grikkja gegn Hollandi í gær.

Grikkland var tveimur mörkum yfir í hálfleik en missti forskotið niður og leiknum lauk með 2-2 jafntefli.
Tzolis spilaði aðeins 18 mínútur áður en hann meiddist aftan í læri. Gríski fréttamaðurinn Dimitris Manakos segir að Tzolis sé búinn að draga sig úr hópnum og farinn aftur til Arsenal.

Tzolis skoraði í leiknum en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Stuttu síðar meiddist hann og þurfti að fara af velli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.