Fotbolti.net
02.12.14 - 16:10
Magnús Már Einarsson

Birkir Már til Hammarby (Staðfest)

Birkir Már Sævarsson.

Birkir Már Sævarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birkir Már Sævarsson hefur gengið formlega til liðs við Hammarby í Svíþjóð en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag.

Birkir Már hefur leikið með Brann frá árinu 2008 en samningur hans þar er að renna út.
Samtals skoraði Birkir 15 mörk í 168 leikjum með Brann en liðið féll úr norsku úrvalsdeildinni á dögunum.

,,Ég vildi prófa eitthvað nýtt og eftir að ég heyrði að Hammarby hefði áhuga lét allt annað til hliðar,\" sagði Birkir Már sem á 45 landsleiki að baki.

,,Þetta er mjög spennandi félag sem er á uppleið og er með góða stuðningsmenn. Ég tel að Hammarby henti fullkomlega fyrir mig.\"

Hammarby vann sænsku fyrstu deildina í sumar og spilar því á meðal þeirra bestu á næsta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.