Fotbolti.net
02.12.19 - 12:34
Magnús Már Einarsson

Segir líklegast að Sancho fari til Liverpool

Segir líklegast að Sancho fari til Liverpool
Canon

Mynd: Getty Images

Norski fjölmiðlamaðurinn Jan Aager Fjortoft segir frá því í dag að Liverpool sé í bílstjórasætinu í baráttunni um kantmanninn Jadon Sancho.

Sancho er sagður vilja yfirgefa Dortmund strax í janúar en hann hefur ekki verið ánægður hjá félaginu undanfarnar vikur.

Fjortoft spilaði í Þýskalandi á sínum tíma en hann segist hafa þessar fréttir frá góðum heimildarmanni þar í landi.

Hinn 19 ára gamli Sancho hefur slegið í gegn hjá Dortmund undanfarin tvö ár eftir að hann kom til félagsins frá Manchester City.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.