Fotbolti.net
02.12.20 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Brentton, Daniel og Rafa framlengja við Vestra

Rafa verður áfram hjá Vestra.

Rafa verður áfram hjá Vestra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Vestri, sem leikur í Lengjudeildinni, hefur framlengt við þrjá leikmenn sem verða áfram hjá félaginu.
Leikmennirnir sem um ræðir eru þeir Brentton Muhammad, Daniel Badu og Rafa Mendéz.

Brentton hefur verið hjá Vestra frá 2018 og er hluti af sterku markmannsteymi liðsins ásamt Robert Blakala. Brentton hefur einnig spilað með Ægi og Tindastóli hér á landi.

Daniel er fjölhæfur enskur leikmaður sem hefur leikið með Vestra frá 2015. Hann hefur verið hér á landi í tíu ár og einnig spilað með Njarðvík og Magna hér á landi.

Rafa kom til Vestra fyrir síðustu leiktíð og stóð sig gríðarlega vel í hægri bakverðinum. Hann spilaði 20 leiki á síðasta tímabili og skoraði í þeim eitt glæsilegt mark.

Vestri hafnaði í sjöunda sæti Lengjudeildarinnar á síðustu leiktíð. Bjarni Jóhannsson hætti sem þjálfari liðsins eftir tímabilið og Heiðar Birnir Torleifsson tók við.
Daniel Badu.

Daniel Badu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brentton Muhammad.

Brentton Muhammad.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.