Fotbolti.net
04.10.26 - 17:41
Ívan Guðjón Baldursson

England: Fullkomin byrjun City hélt áfram á kostnað Arsenal

Man City er með háleit markmið.

Man City er með háleit markmið.

Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Fimmtu umferð enska ofurdeildartímabilsins lauk í dag þar sem Manchester City hafði betur gegn Arsenal í stórleik helgarinnar.
Arsenal náði forystunni í tvígang í Manchester en heimakonum tókst að jafna metin áður en þær sóttu sigur á lokakaflanum. Lauren Hemp var atkvæðamest með tvö mörk og eina stoðsendingu og komst Khadija Shaw einnig á blað, lokatölur 4-2.

Arsenal var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en seinni hálfleikurinn var nokkuð jafn. Heimakonur í liði City sýndu gæðin sín með góðri færanýtingu sem skóp sigurinn.

City er með fullt hús stiga eftir fimm umferðir en Arsenal er aðeins með fimm stig eftir hörmulega byrjun á deildartímabilinu.

Chelsea er í öðru sæti, tveimur stigum á eftir City, eftir sannfærandi sigur á útivelli gegn West Ham og fylgir spennandi lið London City Lionesses fast á eftir í þriðja sæti.

London City rúllaði yfir Tottenham í dag í leik þar sem Alexia Putellas og Kadidiatou Diani settu sitthvora tvennuna á meðan Danielle van de Donk og Delphine Cascarino komust einnig á blað. Stór nöfn í sterku liði London City sem er þremur stigum á eftir toppliði Manchester City.

Þetta var fyrsta tap Tottenham á tímabilinu og situr liðið eftir í fjórða sæti, tveimur stigum á eftir London City.

Man City 4 - 2 Arsenal
0-1 Lisa Baum ('43)
1-1 Lauren Hemp ('45+1)
1-2 Alessia Russo ('49)
2-2 Kerstin Casparij ('63)
3-2 Lauren Hemp ('72)
4-2 Khadija Shaw ('84)

West Ham 0 - 3 Chelsea
0-1 Melvine Malard ('38)
0-2 Keira Walsh ('80)
0-3 Maika Hamano ('87)

Tottenham 1 - 6 London City
0-1 Alexia Putellas ('3)
0-2 Kadidiatou Diani ('22)
0-3 Alexia Putellas ('34)
0-4 Danielle van de Donk ('52)
1-4 Victoria Pelova ('54)
1-5 Kadidiatou Diani ('74)
1-6 Delphine Cascarino ('94)

Aston Villa 1 - 1 Crystal Palace

Brighton 5 - 1 Charlton

Everton 2 - 1 Birmingham
Landsliðskonurnar Lauren Hemp og Keira Walsh komust báðar á blað.

Landsliðskonurnar Lauren Hemp og Keira Walsh komust báðar á blað.

Canon

Mynd: EPA

England: Fullkomin byrjun City hélt áfram á kostnað Arsenal
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.