Fotbolti.net
04.10.26 - 17:49
Andri Stefánsson

Jeffs: Stelpurnar sýndu virkilega góðan karakter

Auglýsing
Ian Jeffs.

Ian Jeffs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
„Ég er bara búinn á því“, sagði Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, eftir ótrúlegan endurkomusigur gegn Þrótti í Bestu deild kvenna í dag.
Lestu um leikinn: Breiðablik 5 - 4 Þróttur R.
Ótrúlegur endurkomusigur. Hvernig gerirðu upp leikinn?

„Við vorum ekki með fyrstu 55–60 mínúturnar í dag. Við náðum að koma liðinu saman í hálfleik, fórum yfir prinsippin okkar og hvernig við viljum spila. Stelpurnar sýndu svo virkilega góðan karakter í seinni hálfleik og sneru þessu við.“

Hvað var að klikka hjá ykkur í fyrri hálfleik?

„Hápressan virkaði ekki og við vorum allt of langt frá mönnum. Þær náðu að spila yfir pressuna og þegar við vorum ekki í henni náðu þær að spila í kringum okkur. Það vantaði ákefð og Þróttur keyrði yfir okkur lengi vel. Ég þarf að horfa á leikinn aftur því þetta var mjög ólíkt okkur.“

Þið haldið forskotinu á toppnum þegar tvær umferðir eru eftir. Hvernig meturðu stöðuna?

„Það er bara næsti leikur hjá okkur. Ég vissi að þetta yrði mjög erfiður leikur því Þróttur er með mjög gott lið. Ég er mjög ánægður með þrjú stig og karakterinn í liðinu. Nú kemur landsleikjahlé og svo er Stjarnan næst.“

Hrafnhildur Ása skorar þrennu. Hvað segirðu um hennar frammistöðu?

„Hún var geggjuð í seinni hálfleik. Hún nýtti færin sín mjög vel og ég er ánægður með að hún sé að koma sér í þessi færi. Þetta er frábært fyrir hana og sjálfstraustið.“

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik21+3046
2FH21+2943
3ÍBV21-830
4Stjarnan21-127
5Þróttur R.21-126
6Grindavík/Njarðvík21-1026
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.