Fotbolti.net
02.12.20 - 20:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Championship: Watmore sá um Swansea

Championship: Watmore sá um Swansea
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Middlesbrough 2 - 1 Swansea</b>
1-0 Duncan Watmore ('26 )
2-0 Duncan Watmore ('67 )
2-1 Yan Dhanda ('78 )
Duncan Watmore reyndist hetja Middlesbrough sem vann Swansea í Championship-deildinni í kvöld. Einum leik af sex leikjum í deildinni þetta kvöldið er lokið.

Watmore skoraði bæði mörk Boro. Fyrra markið kom á 26. mínútu eftir undirbúning Marvin Johnson og það seinna á 67. mínútu eftir undirbúning Paddy McNair.

Yan Dhanda minnkaði muninn á 78. mínútu en lengra komust gestirnir frá Wales ekki.

Boro er með 24 stig og Swansea 26 stig í 7. og 8. sæti eins og staðan er núna. Stoke og Blackburn geta komist upp fyrir Swansea með sigrum í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.