Franski landsliðsmarkvörðurinn Mike Maignan var í essinu sínu í 3-0 sigri Milan á Genoa í gær en hann er að gera sterkt tilkall til að vera markvörður númer eitt hjá Frakklandi.
Maignan kom til Milan í sumar eftir að hafa fagnað franska meistaratitlinum með Lille á síðustu leiktíð.
Hann hefur verið stórkostlegur í ítölsku deildinni og var aðeins búinn að fá á sig sex mörk í fyrstu sjö leikjunum áður en hann meiddist.
Cristian Tatarusanu fór í markið í fjarveru hans og fékk á sig tíu mörk í sex leikjum. Maignan spilaði annan leik sinn eftir meiðsli í gær og bauð upp á tvær frábærar vörslur í leiknum en þær má sjá hér fyrir neðan.
Maignan is phenomenal 🦅 pic.twitter.com/6NkcHXui1e
— III (@Semprista) December 1, 2021
MAIGNAN INSANE SAVE & TOMORI INSANE CLEARANCE pic.twitter.com/YtLGiwIWpU
— Inside Milan (@_InsideMilan) December 1, 2021
Athugasemdir