Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 02. desember 2022 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lewandowski ánægður þrátt fyrir tap
Mynd: EPA

Robert Lewandowski framherji Barcelona og pólska landsliðsins hefur opinberað hvað fór á milli hans og Lionel Messi fyrir leik Póllands og Argentínu á dögunum.


„Við spjölluðum smá. Ég sagði Messi að ég væri í varnarsinnaðra hlutverki en venjulega. Stundum er það sem liðið þarf," sagði Lewandowski.

Argentína vann leikinn 2-0 en Lewandowski var samt sem áður ánægður þar sem Pólland komst uppúr riðlinum.

„Þetta er í fyrsta sinn sem maður var ánægður eftir tap. Maður getur sagt að þetta var ánægjulegt tap. Ég er ekki ánægður með spilamennskuna. Við getum ekki verið sáttir með leikinn sjálfan, við vildum ekki taka áhættur en við náðum markmiðinu að komast áfram. Þó svo við töpuðum getum við verið ánægðir,"


Athugasemdir
banner
banner
banner