Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 02. desember 2022 19:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Shaqiri kom Sviss yfir en Mitrovic ekki lengi að jafna
Mynd: EPA
Það er spenna í G-riðli en Xhredan Shaqiri styrkti stöðu Sviss í 2. sæti riðilsins með því að koma liðinu yfir eftir 20 mínútna leik.

Það liðu þó aðeins sex mínútur þangað til Aleksandar Mitrovic jafnaði metin. Það er enn markalaust í viðureign Brasilíu og Kamerún en eins og staðan er núna eru Brasilía og Sviss að fara áfram í 16 liða úrslit.

Serbía og Kamerún þurfa á sigri að halda til að komast uppfyrir Sviss en Kamerún er með betri markatölu.

Eins og staðan er núna:

1. Brasilía 7 stig (+3 markatala)
2. Sviss 4 stig (0)
3. Kamerún 2 stig (-1)
4. Serbía 2 stig (-2)


Athugasemdir
banner
banner
banner