Fotbolti.net
03.10.26 - 10:25
Brynjar Ingi Erluson

Var nálægt því að taka skóna af hillunni

Hatem Ben Arfa

Hatem Ben Arfa

Canon

Mynd: EPA

Fyrrum fótboltamaðurinn Hatem Ben Arfa var nálægt því að taka skóna af hillunni í byrjun árs, en frá þessu greinir franska blaðið Nice-Matin.
Hvar eru þeir núna? - Leikmenn sem voru eitt sinn á toppnum
TENGT EFNI

Hvar eru þeir núna? - Leikmenn sem voru eitt sinn á toppnum

Ben Arfa, sem er 39 ára gamall, hefur ekki spilað atvinnumannafótbolta í fjögur ár eða síðan hann var rekinn frá Lille í heimalandinu.

Frakkinn er eitt mesta hæfileikabúnt sem komið hefur fram í frönskum fótbolta, en skapgerð og agavandamál urðu honum oft að falli og komu í veg fyrir að ferillinn yrði jafn stór og hæfileikarnir gáfu tilefni til.

Ben Arfa lék meðal annars með Lyon, Newcastle United, Nice, Lille, Rennes og Paris Saint-Germain á ferlinum. Hæfileikarnir voru aldrei dregnir í efa, en ágreiningur og vandræði fylgdu honum víða.

Eftir að hann var rekinn frá Lille tilkynnti hann aldrei formlega að hann væri hættur í fótbolta, en það þótti nokkuð augljóst enda sneri hann sér að padel þar sem hann er sagður vera í fremstu röð í Frakklandi.

Nice-Matin greinir nú frá því að Ben Arfa hafi verið ótrúlega nálægt því að taka skóna aftur fram í byrjun árs. Jean-Pierre Rivere sneri þá aftur til Nice sem varaforseti og reyndi að fá Ben Arfa aftur til félagsins.

Þeir tveir eru í góðu sambandi eftir að Ben Arfa lék með Nice tímabilið 2015-2016 og skoraði þá átján mörk.

Ben Arfa var opinn fyrir því að snúa aftur á völlinn, en Claude Puel, þjálfari Nice, var fyrst mótfallinn hugmyndinni. Hann samþykkti hana þó að lokum með því skilyrði að Ben Arfa myndi annað hvort hefja æfingar í París til að komast aftur í takt eða æfa með unglingaliði Nice.

Það leist Ben Arfa alls ekki á og varð því ekkert af endurkomunni.

Svekkjandi tíðindi, þá sérstaklega fyrir eldri kynslóðina sem hefði eflaust viljað fá að sjá hann leika listir sínar að minnsta kosti einu sinni enn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.