Fotbolti.net
03.10.26 - 09:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

De Bruyne braut 200 marka múrinn

De Bruyne braut 200 marka múrinn
Canon

Mynd: EPA

Kevin De Bruyne átti frábæran leik þegar Belgía vann 3-0 sigur á Tyrklandi í Þjóðadeildinni í gær.
De Bruyne skoraði tvö fyrstu mörkin og Romelu Lukaku innsiglaði sigurinn.

De Bruyne hefur skorað 201 mark á ferlinum en mörkin eru orðin 40 talsins fyrir belgíska landsliðið.

„Þetta er frábært. Mér leið vel fyrir leikina. Nú höfum við sett saman þrjá góða leiki. Þessi leikstíll hentar mér vel. Við höfum byrjað vel og við munum reyna að byggja ofan á þetta," sagði De Bruyne.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.