03.10.26 - 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Chiesa reiðubúinn að yfirgefa Liverpool - Haaland til Arsenal?

Chiesa er reiðubúinn að yfirgefa Liverpool

Mynd: EPA

Arsenal hefur fjármunina í að fá Haaland

Federico Chiesa gæti verið á förum frá Liverpool, Arsenal er sagt hafa efni á Erling Haaland og Michael Kayode er orðaður við Juventus. Þetta og meira til í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Inter, Lazio og Atalanta hafa öll áhuga á ítalska vængmanninum Federico Chiesa (28), sem er reiðubúinn að yfirgefa Liverpool í janúar. (Calciomercato)
Arsenal hefur fjármagnið til að reyna að fá Erling Haaland (26) frá Manchester City, en norski framherjinn er þó talinn líklegri til að vilja fara til Barcelona en Lundúnafélagsins. (Teamtalk)
Juventus hefur áfram áhuga á Michael Kayode (22), hægri bakverði Brentford og ítalska landsliðsins. (Gazzetta dello Sport)
Spænski miðjumaðurinn Dani Olmo (28) vill ekki yfirgefa Barcelona þrátt fyrir áhuga Arsenal, Chelsea og félaga í sádi-arabísku deildinni. (CaughtOffside)
Tottenham og Liverpool fylgjast með stöðu japanska vængmannsins Kaoru Mitoma (29) hjá Brighton. Hann gæti yfirgefið félagið í janúar, en samningur hans rennur út eftir tímabilið. (Teamtalk)
Hinn ungi og efnilegi Gilberto Mora (17), sem varð í sumar yngsti landsliðsmaður í sögu Mexíkó, myndi frekar vilja fara til Barcelona eða Real Madrid en Liverpool ef hann yfirgefur Club Tijuana á næsta ári. (Football Insider)
Barcelona fylgist með Nicolo Tresoldi (22), framherja Club Brugge og U21-landsliðs Þýskalands. (Sport)
Pep Guardiola, fyrrum stjóri Manchester City, ætlar að mæta á leik liðsins gegn Paris Saint-Germain þann 14. október til að sýna sínu gamla félagi stuðning í málinu gegn ensku úrvalsdeildinni. (Express)