Fotbolti.net
03.10.26 - 11:59
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

Í BEINNI - Útvarpsþátturinn á leikdegi á X977

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á laugardögum 12-14

Í BEINNI - Útvarpsþátturinn á leikdegi á X977
Canon

Mynd: Fótbolti.net

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður í þráðbeinni á X977 í dag laugardag milli 12 og 14 eins og venjan er.

Það er leikdagur framundan en klukkan 16 í dag leikur Ísland gegn Búlgaríu á Laugardalsvelli. Frammistaða liðsins í Þjóðadeildinni verður skoðuð og hitað upp fyrir leikinn.
Smelltu hér til að hlusta á X977 í beinni

Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars verða í hljóðveri og fara yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum, ræða meðal annars um mögulegar breytingar á Bestu deildinni, U21 landsliðið, mál Manchester City og fýluna í Ronaldo.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X977 alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X977 á netinu með því að smella hérna
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.