Ummæli ársins 2014 í íslenska boltanum

Sólin skein á Baldur Sigurðsson á árinu.

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson

Vilhjálmur Alvar fékk nýja flautu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daði Bergsson fékk gæsahroll.

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson

Ólafi finnst Vidic ekki skemmtilegur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gareth Bale fór illa með Íslendinga.

Mynd: Getty Images

Orri fær sér hamborgara.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Viðar Örn hætti að fara í ljós.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sólin skein á Baldur Sigurðsson á árinu.

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
„Það er hægt að segja að á svona dögum er mjög slæmt að tapa uppkastinu að því það er rosa erfitt að spila á móti sól hér í fyrri hálfleik,\" – Baldur Sigurðsson, fyrirliði KR, eftir tap gegn Val í fyrstu umferð.
„Er ekki bara eitt að segja við Sigga? Velkominn í fótboltann!\" - Þorvaldur Örlygsson í Pepsi-mörkunum þegar illa gekk hjá Sigurði Ragnari Eyjólfssyni og ÍBV.
„Faktað er að ég var með liðið fyrstu sex leikina. Faktað er að ég er að fara. Faktað er að stjórnin tók ákvörðun um þetta og auðvitað held ég áfram ef ég er beðinn um það. Faktað er að liðið er á þeim stað sem liðið er og menn verða bara að spýta í lófana,\" - Ólafur Kristjánsson minnti á Rafael Benítez.
„Það er bara spurning hvort ég eigi bara að fjúka... alveg eins skilurðu.\" - Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV, um stöðu Sigurðs Ragnars þjálfara.
„Þetta var besti leikur liðsins undir minni stjórn. Alveg klárt,\" - Guðmundur Benediktsson eftir 1-1 jafntefli við Fylki sem var fyrsti leikur Breiðabliks undir hans stjórn.
„Manni er hálf illt í rassinum að tapa 4-1 fyrir Fram,\" - Bergsveinn Ólafsson, fyrirliði Fjölnis.
„Fer ekki Wayne Rooney á hveru ári í recoveringu þegar hann meiðist? Eigum við ekki að telja að þetta sé eðlilegt hjá Tjöllunum,\" - Magnús Gylfason, þjálfari Vals, eftir að James Hurst fór á djammið í Dubai meðan hann var meiddur.
„Það er verið að reyna að drepa mann hérna!\" - Bjarni Fel hundfúll með fyrri hálfleikinn í leik KR og Fylkis.
„Hann hlýtur að hafa verið að fá nýja flautu, hann flautaði svo mikið í hana.\" - Tómas Ingi Tómasson í Pepsi-mörkunum um Vilhjálm Alvar Þórarinsson dómara.
„Aron Elís vann þennan leik. Það var frábært að sjá hann spila. Ég hvet alla til að mæta á völlinn og horfa á hann spila meðan hann er hér á landinu,\" - Kristján Guðmundsson þjálfari Keflavíkur en hans menn réðu engan veginn við Aron Elís Þrándarson.
„Þessi leikur hefur allt! Reiðan formann, mörk, rautt spjald, árás á dómara, og Heimir Guðjóns búinn að segja stúkunni að grjóthalda kjafti!.\" - Egill Gillz Einarsson, stuðningsmaður Breiðabliks, um leik gegn FH.
„Mér sárnaði meira að Garðar (Örn Hinriksson, dómari) laug að mér. Hann sagðist hafa talað við línuvörðinn en línuvörðurinn sagði að hann réði engu um þetta því að Garðar réði þessu.\" - Stefán Logi Magnússon, markvörður KR, fékk rautt spjald.
„Þetta var mjög sætt. Ég fékk gæsahroll, þvílíkan gæsahroll.“ - Daði Bergsson, leikmaður Vals, eftir sigur gegn Keflavík
„Ég svara ekki svona barnalegum spurningum. Það er bara grín að hlusta á svona kjaftæði. Ég nefndi hann ekki einu orði á fundinum fyrir leik. Í alvöru talað strákar, ég tek ekki þátt í svona.\" - Magnús Gylfason var sakaður um að hafa lagt upp með að sparka Aron Elís úr leiknum.
„Það eru til fávitar út um allt og það eru ekki allir sammála því hvernig við spilum. Það skiptir okkur ekki máli þó að einn maður út í bæ missi sig á samfélagsmiðli. Hann gerði sjálfan sig mest að fífli,\" - Tómas Ingi, aðstoðarþjálfari U21, um gagnrýni Hödda Magg á leikstíl liðsins.
„Gylfi hefur oft verið meira áberandi í leikjum.\" - Pétur Marteinsson, sérfræðingur RÚV, eftir 3-0 sigur Íslands gegn Tyrklandi þar sem Gylfi var óstöðvandi.
„Ef maður er úr Eyjum eða utan af landi þá held ég að maður hati KR,“ - Víðir Þorvarðarson, leikmaður ÍBV.
„Ég þoli ekki þegar menn tala með rassinum og kasta steinum úr glerhúsi,\" - Grétar Sigfinnur Sigurðarson ósáttur með ummæli Kassim Doumbia sem sakaði Gary Martin um að láta sig falla í sífellu.
„Þetta er stundum eins og að glíma við Sovét eða eitthvað svoleiðis.\" – Páll Kristjánsson, þjálfari KV, um kröfur í reglum KSÍ.
„Hann var brjálaður. Hann er fokking leiðinlegur. Ég hélt að hann hefði húmor fyrir þessu en við fórum aðeins að rífast. Hann er drepleiðinlegur.\" - Ólafur Karl Finsen reyndi að taka Nemanja Vidic upp á Snapchat þegar þeir voru í lyfjaprófi en Serbanum fannst það ekki fyndið.
„Við bíðum með að fagna þar til það er komið (Staðfest) á Fótbolta.net að Leiknir sé komið í Pepsi-deildina.\" - Freyr Alexandersson, annar þjálfara Leiknis.
„Þetta er í hópi slakari leikja sem ég hef spilað á mínum atvinnumannaferli. Ég á að geta lesið leikinn betur en þetta. Þetta er helvíti pirrandi.\" - Theodór Elmar Bjarnason eftir tap Íslands í Tékklandi.
„Ef maður vildi einhvern tíma ekki vera Ari Freyr Skúlason þá væri það í dag.\" - Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari eftir sýninguna sem Gareth Bale hélt í leik Wales og Íslands.
„Lars og Heimir hafa oft hrósað mér en samt hafa einhverjir fjölmiðlar talið mann lélegastan á vellinum. Ef maður er sjálfur ánægður og þjálfararnir eru ánægðir þá skiptir það mestu máli þó auðvitað sé það bónus ef fleiri eru ánægðir.\" - Emil Hallfreðsson.
„Ég hugsaði með mér „Það var mikið\", en gamla góða klisjan ef við vinnum og ég skora þá er ánægður að hjálpa liðinu.\" - Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir A-landsliðið gegn Lettlandi.
„Nú er maður farinn til Noregs á bekkinn hjá Brann í fallbaráttu eftir þetta.\" - Birkir Már Sævarsson eftir sigur Íslands gegn Hollandi.
„Ég vann nokkur veðmál við yfirmenn íþróttamála í Hollandi. Ég sendi sms fyrir leik og spurði hvort þeir væru búnir að undirbúa sig undir að tapa. Ég fékk þá spurningar um hvort ég væri á lyfjum og hvort ég væri fullur.\" - Magnús Agnar Magnússon umboðsmaður eftir sigur Íslands gegn Hollandi.
„Hann var til í allt og vildi gera meira og meira. Hver veit nema við tökum lagið saman einn daginn. Það væri draumur. Við yrðum eitrað dúó ég og Raggi.\" - Arnþór Ari Atlason og Raggi Bjarna leiddu saman hesta sína í myndbandi sem Arnór gerði fyrir söngvakeppni skólanum.
„Ég borða alltaf hamborgara og franskar fyrir leiki og drekk Coke með, helst klukkutíma fyrir leik. Ég vil ekki sjá þetta pasta og dót.\" - Orri Hjaltalín.
„Þetta sýnir leikmönnum í Carlsberg deildinni að það er stutt yfir í það besta á Íslandi.\" - Haukur Lárusson leikmaður Fjölnis lék sér í 7 manna utandeildinni fyrir nokkrum árum.
„Það er orðið svo leiðinlegt að horfa á fótbolta. Það eru allir að reyna að svindla. Þetta er orðin einhver tískusýning. Hver er með flottasta hárið og hver er í nýjustu skónum?\" - Ragnar Sigurðsson.
„Eini sem var leiðinlegur og massíf prímadonna var (Karim) Benzema. Hann er algjör aumingi en ógeðslega góður í fótbolta.\" - Ragnar Sigurðsson.
„Þegar ég var 16 ára fór ég tvisvar í viku í ljós. Þannig var þetta á Selfossi og það breytist ekki.\" - Viðar Örn Kjartansson hætti ða fara í ljós.
„Það var Casino í næsta húsi og maður kíkti oft þangað. Ég fór nokkrum sinnum inn á skrifstofu hjá Celtic og bað um að fá launin fyrirfram. Það var oft ströggl í lok mánaðar þegar maður var ekki búinn að plana þetta nógu vel.\" - Theodór Elmar Bjarnason fór illa með peninginn í byrjun atvinnumannaferilsins.
„Ég er enginn alki eða fíkill. Ég þráði bara fjarveru frá lífinu. Sumir gera það með því að borða of mikið, eyða peningum vera reitt og tala illa um allt og alla en ég notaði þessa leið.\" - Ólafur Karl Finsen fór úr óreglu yfir í Íslandsmeistaratitil.
Sjá einnig:
Ummæli ársins 2013
Ummæli ársins 2012
Ummæli ársins 2011 - Fyrri hluti
Ummæli ársins 2011 - Seinni hluti

Vilhjálmur Alvar fékk nýja flautu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daði Bergsson fékk gæsahroll.

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson

Ólafi finnst Vidic ekki skemmtilegur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gareth Bale fór illa með Íslendinga.

Mynd: Getty Images

Orri fær sér hamborgara.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Viðar Örn hætti að fara í ljós.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
