Fotbolti.net
03.02.15 - 14:56
Elvar Geir Magnússon

Hannes Sigurðsson í þýsku 3. deildina (Staðfest)

Hannes Þ. Sigurðsson er kominn í botnlið þýsku 3. deildarinnar.

Hannes Þ. Sigurðsson er kominn í botnlið þýsku 3. deildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hannes Þ. Sigurðsson, sóknarmaðurinn víðförli, hefur skrifað undir samning við þýska 3. deildarliðið SSV Jahn Regensburg út tímabilið.
Hannes er uppalinn FH-ingur en spilaði síðast fyrir Sandnes Ulf sem féll úr norsku úrvalsdeildinni í fyrra.

Hann fór til reynslu hjá þýska félaginu sem ákvað í kjölfarið að bjóða honum samning til sumars.

Jahn Regensburg er í neðsta sæti 3. deildarinnar og á ansi erfitt verkefni fyrir höndum.

Á ferlinum hefur Hannes meðal annars spilað með Stoke á Englandi, Spartak Nalchik í Rússlandi, Atyrau í Kasakstan og Grödig í Austurríki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.