Fotbolti.net
03.02.15 - 14:30
Alexander Freyr Tamimi

Harry Redknapp hættir með QPR (Staðfest)

Harry Redknapp sagði starfi sínu lausu.

Harry Redknapp sagði starfi sínu lausu.

Canon

Mynd: Getty Images

Harry Redknapp hefur sagt starfi sínu sem knattspyrnustjóri QPR lausu, en þetta kom fram rétt í þessu.

QPR er í næst neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 23 leiki með 19 stig, en Redknapp tók við liðinu árið 2012.

Hugsanlegt er að uppsögn Redknapp tengist því hversu illa QPR gekk að fá leikmenn í félagaskiptaglugganum í janúar sem lokaði í gær, en Redknapp er mikill gluggadagsmaður.

Að hans eigin sögn tengist það þó málinu ekki neitt, heldur sú staðreynd að hann þarf að gangast undir aðgerð á hné þegar í stað.
,,Ég hef átt frábæra tíma hjá QPR. Ég vil þakka stjórninni, leikmönnunum og öllu starfsfólki mínu. Sérstaklega stuðningsmönnunum sem hafa verið frábærir við mig síðan ég kom," sagði Redknapp við heimasíðu félagsins.



,,Því miður þarf ég að fara undir eins í aðgerð á hné og mun því ekki geta sinnt mínu starfi á næstu vikum. Það þýðir að ég get ekki mætt á æfingasvæðið á hverjum degi, og ef ég get ekki gefið 100 prósent er betra að einhver annar taki við keflinu."



,,Samband mitt við (eigandann) Tony Fernandes hefur verið eitt af hápunktum ferils míns og ég óska félaginu alls hins besta. Ég er sannfærður um að þeir munu halda sæti sínu."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.