03.02.15 - 00:06
Ívan Guðjón Baldursson
Man Utd fær ungan varnarmann lánaðan frá Bolton (Staðfest)

Andy Kellett í leik með Plymouth Argyle.

Mynd: Getty Images

Andy Kellett í leik með Plymouth Argyle.

Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn ungi Andy Kellett hefur verið lánaður til Manchester United í staðinn fyrir Saidy Janko sem kemur til Bolton.
Kellett er 21 árs gamall vinstri bakvörður og engar útskýringar fást fyrir því hvers vegna Louis van Gaal ákvað að fá þennan leikmann lánaðan.
Kellett er 21 árs gamall vinstri bakvörður og engar útskýringar fást fyrir því hvers vegna Louis van Gaal ákvað að fá þennan leikmann lánaðan.
Kellett á fjóra aðalliðsleiki að baki fyrir Bolton og var fyrri hluta þessa tímabils á láni hjá Plymouth Argyle sem er í tíunda sæti ensku D-deildarinnar. Þar spilaði hann 12 leiki og skoraði eitt mark.
Janko, sem fer hina leiðina, er 19 ára gamall miðjumaður sem á 6 landsleiki að baki fyrir U19 ára lið Svisslendinga og var alinn upp í akademíunni hjá Zurich.
Janko, sem fer hina leiðina, er 19 ára gamall miðjumaður sem á 6 landsleiki að baki fyrir U19 ára lið Svisslendinga og var alinn upp í akademíunni hjá Zurich.
