03.02.15 - 20:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Roger Johnson til Charlton (Staðfest)

Roger Johnson í leik með Wolves.

Mynd: Getty Images

Roger Johnson í leik með Wolves.

Mynd: Getty Images
Roger Johnson hefur gengið til liðs við Charlton en hann yfirgaf Wolves á dögunum.
Johnson hefur ekki spilað fyrir Wolves síðan Kenny Jackett tók við liðinu, sumarið 2013 og komst hann að samkomulagi við liðið í vikunni um að rifta samningi sínum.
Leikmaðurinn skrifaði undir samning við Charlton sem gildir til loka leiktíðinnar en hann lék með West Ham í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð þar sem hann var á láni.
Johnson er sjötti leikmaðurinn sem Charlton fær til sín í byrjun árs en Neil Etheridge, Marko Dmitrovic, Tony Watt, Christophe Leopoint og Milos Veljkovic hafa allir gengið til liðs við félagið.