Fotbolti.net
03.02.15 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Roma kaupir Spolli í stað Kaboul (Staðfest)

Roma kaupir Spolli í stað Kaboul (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

AS Roma hefur ákveðið að hætta að eltast við Younes Kaboul, varnarmann Tottenham, og er búið að fá Nicolas Spolli frá Catania í staðinn.

Roma þarf að greiða 3 milljónir evra fyrir Spolli sem er 32 ára gamall miðvörður.
Roma reyndi við Vlad Chiriches og Kaboul sem eru báðir á mála hjá Spurs en enska félagið setti of háa verðmiða á varnarmennina að mati ítalska félagsins.

,,Samningaviðræðum við Roma er lokið, þetta er staðfest,\" sagði Stefano Barattin, umboðsmaður Spolli, við laroma24.it.

Spolli er argentínskur og á 132 deildarleiki að baki fyrir Catania sem er í fallbaráttu ítölsku B-deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.