Fotbolti.net
03.02.15 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Sampdoria krækir í Munoz og Bonazzoli (Staðfest)

Munoz á 131 deildarleik að baki fyrir Palermo.

Munoz á 131 deildarleik að baki fyrir Palermo.

Canon

Mynd: Getty Images

Sampdoria lét til sín taka á lokadegi viðskiptagluggans á Ítalíu þar sem liðið er búið að fá hinn efnilega Federico Bonazzoli frá Inter og Ezequiel Munoz frá Palermo.

Bonazzoli er 17 ára sóknarmaður sem á fjóra deildarleiki að baki fyrir Inter. Sóknarmaðurinn verður hjá Inter á láni út tímabilið.
Sampdoria borgar 4.5 milljónir evra fyrir sóknarmanninn en Inter hefur þrjú ár til að kaupa leikmanninn til baka fyrir 9 milljónir evra vegna sérstaks kaupákvæðis.

Munoz er 24 ára argentínskur varnarmaður sem verður samningslaus í sumar. Milan reyndi að fá hann frítt en forseti Palermo var brjálaður og sagðist ,,frekar ætla að láta varnarmanninn rotna í stúkunni út tímabilið heldur en að hleypa honum frítt til Milan.\"

Munoz kemur til Sampdoria á lánssamning út tímabilið en ekki hefur verið staðfest hversu mikið Samp þarf að borga fyrir lánið á leikmanninum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.