Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 03. febrúar 2023 11:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Partey tæpur fyrir helgina - Byrjar Jorginho strax?
Thomas Partey.
Thomas Partey.
Mynd: Getty Images
Það er óvíst hvort Thomas Partey geti spilað með Arsenal gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, greindi frá því á fréttamannafundi að það væri óvíst hvort miðjumaðurinn gæti spilað sökum meiðsla.

Partey þurfti að fara meiddur af velli í hálfleik gegn Manchester City í FA-bikarnum síðasta föstudag.

„Við verðum að sjá hvernig hann verður á æfingasvæðinu í dag. Við eigum eftir að taka ákvörðun með þetta. Meiðslin eru ekki mjög alvarleg," sagði Arteta.

Ef Partey missir af leiknum þá eru góðar líkur á því að Jorginho, sem var keyptur til Arsenal á gluggadeginum, muni koma inn í byrjunarliðið.

Arteta sagði jafnframt frá því á fundinum Emile Smith Rowe væri meiddur og gæti ekki spilað gegn Everton.
Athugasemdir
banner
banner