Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
banner
   þri 03. febrúar 2026 21:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kante í verkfall eftir að félagaskiptin fóru ekki í gegn
Mynd: EPA
N'Golo Kante hefur ákveðið að mæta ekki til æfinga hjá Al-Ittihad í Sádi-Arabíu eftir að félagaskipti hans til Fenerbahce í Tyrkalandi fóru ekki í gegn.

Það var allt klappað og klárt en Fenerbahce sagði frá því í yfirlýsingu að ákveðnir pappírar hafi ekki skilað sér í tæka tíð frá Al-Ittihad.

Fenerbahce reyndi að fá framlengingu á fresti frá FIFA til að klára kaupin á Kante en fékk ekki.

Sem hluti af samkomulaginu átti marokkóski sóknarmaðurinn Youssef En-Nesyri að fara til Al-Ittihad. Hann átti að fylla skarð Karim Benzema sem fór til Al-Hilal.


Athugasemdir
banner
banner