Sindri Kristinn Ólafsson, markmaður Keflavíkur, hefur svarað fyrirspurn Fótbolta.net varðandi mögulega flutninga hans til Svíþjóðar.
Sigurður Gísli Bond, einn af sérfræðingum Dr. Football sagði frá því á X í dag að Sindri væri að flytja til Svíþjóðar þar sem kærasta hans, landsliðskonan Guðrún Arnardóttir, spilar með Hammarby.
Fótbolti.net sendi fyrirspurn á Sindra vegna færslunnar. Sindri var spurður út í meinta flutninga til Svíþjóðar.

„Ég hef verið að spila alla leiki fyrir Keflavík seinasta árið og núna seinast bara á föstudaginn. Kærastan mín var vissulega að skrifa undir í Svíþjóð og í drauma heimi gætum við búið saman en lífið er ekki svona einfalt."
„Þetta er bara ákvörðun sem við Guðrún tökum þegar að því kemur."
„Ég er með fullan fókus á Keflavík og held að allir í teyminu geti staðfest það að ég hef verið með hugann við verkefnið," segir Sindri.
Keflavík er að endurheimta Ásgeir Orra Magnússon eftir að hann sleit krossband síðasta vor.
Athugasemdir