Fotbolti.net
03.03.17 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Þrír Króatar í Sindra (Staðfest)

Þrír Króatar í Sindra (Staðfest)
Canon

Mynd: Gunnar Stígur Reynisson

Sindri hefur fengið króatísku leikmennina Nede Eres, Mate Paponja og Darko Franic fyrir átökin í 2. deildinni í sumar.
Mate er 26 ára gamall varnarmaður en hann var á reynslu hjá Fram fyrir síðasta tímabil.

Mate spilaði með Fram í Lengjubikarnum í nokkrar vikur en fékk síðan ekki áframhaldandi samning.

Darko er 29 ára gamall markvörður en hann spilaði síðast með HNK Zmaj Makarska í króatísku C-deildinni.

Nede er 24 ára gamall en hann getur spilað í öllum fremstu stöðunum.

Sindri endaði í 4. sæti í 2. deildinni í fyrra en eftir tímabilið hætti Auðun Helgason sem þjálfari eftir tveggja ára starf. Samir Mesetovic tók síðan við þjálfarastöðunni í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.