Alvaro Arbeloa, þjálfari Real Madrid á Spáni, segir að titilbaráttunni sé ekki lokið og að markmiðið sé að vinna restina af leikjunum sem eftir eru í La Liga.
Real Madrid lá fyrir nágrönnum sínum í Getafe á Santiago Bernabeu í gær.
Þarna fór Real Madrid illa með tækifæri til þess að komast stigi á eftir Barcelona í titilbaráttunni.
Madrídingar fengu svo sannarlega færin til þess að skora, en vantaði herslumuninn. Liðið var án Kylian Mbappe, sem hefur séð um að loka leikjum fyrir Madrídinga á tímabilinu, en Arbeloa vildi ekki kenna leikmönnum liðsins um tapið í gær.
„Deildinni er ekki lokið. Það eru enn 36 stig í pottinum og við munum berjast fram að síðasta leik. Þetta eru bara fjögur stig og við getum náð þeim. Þetta er Real Madrid.“
„Ég ber ábyrgðina á þessu tapi. Er fjarvera Bellingham og Mbappe ástæðan fyrir tapinu? Nei, þetta er Real Madrid, við erum með nógu marga leikmenn til þess að vinna leiki. Ég ætla ekki að koma með einhverjar afsakanir. Ekki kenna leikmönnunum um tapið, skellið skuldinni á mig,“ sagði Arbeloa.
Athugasemdir




