Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   þri 03. mars 2026 11:04
Elvar Geir Magnússon
Einkaþota Ronaldo flýgur frá Sádi-Arabíu
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo virðist hafa flúið Sádi-Arabíu en einkaþota hans fór frá Ríad og til Madrídar í gærkvöldi. Þúsundir eru að flýja svæðið.

Stríð Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran hefur breiðst um öll Mið-Austurlönd. Sendiráði Bandaríkjanna í Ríad í Sádi-Arabíu var lokað eftir að það varð fyrir drónaárás.

Áætlunarflug hefur legið niðri en Ronaldo, sem spilar fyrir Al-Nassr, á Bombadier Global Express 6500 einkaþotu og hún flaug til Madrídar seint í gærkvöldi.

Ronaldo, sem er 41 árs, er á meiðslalistanum sem stendur eftir að hafa meiðst í 3-1 sigri gegn Al Fahya. Ekki er búist við því að hann spili næsta leik, gegn Al-Wasl í Meistaradeild Asíu. Leikurinn átti að vera á morgun en hefur verið færður til mánudags vegna ástandsins á svæðinu.


Athugasemdir
banner