Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 03. apríl 2021 21:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alexander-Arnold svaraði enska landsliðsþjálfaranum vel
Alexander-Arnold og Pierre-Emerick Aubameyang í baráttunni í kvöld.
Alexander-Arnold og Pierre-Emerick Aubameyang í baráttunni í kvöld.
Mynd: Getty Images
Trent Alexander-Arnold átti frábæran leik fyrir Liverpool gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Hann lagði upp fyrsta mark Liverpool í leiknum fyrir Diogo Jota og var áræðinn í þriðja markinu þegar hann vann boltann vel.

Mikið er talað um það á samfélagsmiðlum að hann hafi svarað landsliðsþjálfara Englendinga, Gareth Southgate, mjög vel.

Alexander-Arnold hefur síðustu þrjú árin fagnað góðu gengi með Liverpool og unnið ensku úrvalsdeildina, Meistaradeildina ásamt því að vera heimsmeistari félagsliða en á þessu tímabili hefur hann fengið nokkra gagnrýni fyrir leik sinn.

Hann var ekki valinn í enska landsliðshópinn fyrir síðasta verkefni en ef hann heldur áfram að spila eins og hann gerði í kvöld þá verður erfitt fyrir Southgate að líta fram hjá honum.



Athugasemdir
banner
banner
banner